Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 20. mars 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carvajal um Mbappe: Frábærar fréttir fyrir Real og La Liga
Mynd: EPA

Kylian Mbappe er líklega á leið til Real Madrid í sumar en Dani Carvajal leikmaður liðsins er spenntur að spila með franska landsliðsmanninum.


Samningur Mbappe hjá PSG rennur út í sumar og leikmaðurinn hefur gefið út að hann muni yfirgefa félagið þegar samningurinn rennur út. Líklegast þykir að hann muni semja við Real Madrid.

Spænski miðillinn El Partidazo de COPE spurði Carvajal út í Mbappe.

„Við (leikmennirnir) höfum ekkert heyrt um Mbappe en það lítur út fyrir að það sé möguleiki að Mbappe komi til Real í sumar. Það væri frábært að fá hann, hann er toppleikmaður. Þetta eru frábærar fréttir fyrir Real og La Liga," sagði Carvajal.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner