Thibaut Courtois mun ekki spila á þessu tímabili eftir að hafa meiðst á æfingu Real Madrid í gær.
Þessi 31 árs gamli belgíski markvörður var ný byrjaður að æfa eftir að hafa slitið krossband á vinstra hné þegar hann meiddist illa á hægra hné í gær.
Hann mun líklega þurfa að fara í aðgerð og verður því ekki klár í slaginn fyrr en á næstu leiktíð.
„Takk fyrir öll skilaboðin. Ég er sár yfir meiðslunum en þetta er bara minniháttar bakslag sem mun gera mig mun sterkari þegar ég kem til baka," skrifaði Courtois á samfélagsmiðla.
Athugasemdir