Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 22. mars 2024 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
María og Hildur lögðu upp í stórsigri Sittard
Hildur Antonsdóttir
Hildur Antonsdóttir
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Íslendingaliðið Fortuna Sittard fór hamförum í hollensku deildinni í kvöld þegar liðið valtaði yfir Telstar.


María Catharina Ólafsdóttir Gros, Hildur Antonsdóttir og Lára Kristín Pedersen voru allar í byrjunarliðinu.

Leiknum lauk með 8-0 sigri Sittard en Tessa Wullaert skoraði sjö mörk. María og Hildur lögðu upp sitt markið hvor.

Liðið er í 4. sæti deildarinnar með 30 stig eftir 18 leiki en liðið er 12 stigum á eftir Ajax sem er í 2. sæti en tvö efstu liðin vinna sér sæti í Meistaradeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner