Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Ungstirni Barcelona skoraði stórkostlegt mark í sínum fyrsta landsleik
Mikayil Faye
Mikayil Faye
Mynd: Barcelona

Mikayil Faye, 19 ára gamall varnarmaður Barcelona, spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Senegal í gær og skoraði stórkostlegt mark í frumrauninni.


Faye hefur ekki enn spilað leik fyrir aðallið Barcelona en var samt sem áður í byrjunarliði Senegal þegar liðið vann Gabon 3-0 í æfingaleik í gær.

Hann skoraði annað mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Hann stóð vel fyrir utan vítateiginn og boltinn barst til hans eftir aukaspyrnu hjá Senegal og hann lét vaða á markið.

Boltinn sveif yfir markvörð Gabon og fór í slána og inn. Sadio Mane skoraði þriðja og síðasta mark Senegal í leiknum.

Sjáðu markið hér


Athugasemdir
banner
banner