Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. mars 2024 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Fyrsti leikur Árna Vill í tæpa tvo mánuði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blikinn Árni Vilhjálmsson spilaði í 1-1 jafntefli Novara gegn Perglottese í C-deildinni á Ítalíu í dag en þetta var fyrsti leikur hans í tæpa tvo mánuði.

Árni samdi við Novara í desember mánuði og spilaði síðan fjóra leiki í janúar.

Síðasti leikur sem hann spilaði var í 3-0 tapi gegn Padova þann 28. janúar en síðan þá hafði hann þurft að dúsa á bekknum hjá Novara.

Í dag fékk hann loks tækifærið eftir tveggja mánaða bið en hann kom inn af bekknum þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka.

Novara er í 17. sæti A-riðils með 35 stig en liðið var að gera sjöunda jafnteflið í röð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner