Kobbie Mainoo, leikmaður Manchester United, spilaði sinn fyrsta A-landsleik í 1-0 tapi Englands gegn Brasilíu í gær.
Mainoo, sem er 18 ára gamall, var ekki í A-landsliðshópnum fyrir verkefnið, en var kallaður inn nokkrum dögum fyrir leikinn gegn Brasilíu.
Hann kom síðan inn af bekknum í síðari hálfleik í fyrsta leik sínum fyrir landsliðið.
„Sérstök tilfinning að spila minn fyrsta A-landsleik á Wembley og fyrir framan fjölskyldu mína. Þetta er minning sem ég mun aldrei gleyma,“ sagði Mainoo.
Englendingurinn hefur verið í frábæru formi með United á tímabilinu en hann hefur komið að fjórum mörkum í tuttugu leikjum með aðalliðinu.
Athugasemdir