Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 25. mars 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Peningar eru ekki allt
Mynd: EPA
Pólski framherjinn Robert Lewandowski hefur engan áhuga á því að yfirgefa Barcelona í sumar en þetta kemur fram í Mundo Deportivo.

Félög í Sádi-Arabíu vilja fá Lewandowski í sumar og er talið að þau ætli að sannfæra hann með því að greiða honum 100 milljónir evra í árslaun.

Mundo Deportivo fullyrðir þetta en segir einnig að Lewandowski hafi ekki áhuga á að fara þangað. Peningar eru ekki allt fyrir honum, en hans ósk er að vera áfram í Barcelona.

Lewandowski, sem er 35 ára gamall, kom til Barcelona frá Bayern München árið 2022.

Hann skoraði 33 mörk á fyrsta tímabili sínu og er þá kominn með 20 mörk á þessari leiktíð.

Samningur hans gildir til 2026 en hann er með 500 milljóna evra riftunarákvæði í samningnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner