Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 27. mars 2024 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Bayern mun reyna við De Zerbi ef Alonso ákveður að vera áfram hjá Leverkusen
Roberto De Zerbi
Roberto De Zerbi
Mynd: EPA
Þýska félagið Bayern München er með B-plan ef það fer svo að Xabi Alonso ákveður að vera áfram hjá Bayer Leverkusen á næsta tímabili.

Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi fullyrðir að Alonso mun aðeins taka við Bayern München ef hann fer frá Bayer Leverkusen í sumar.

Liverpool kemur ekki til greina á þessu augnabliki en valið verður á milli þess að fara til Bayern eða taka annað tímabil með Leverkusen.

Ef hann ákveður að vera áfram hjá Leverkusen þá ætlar Bayern að reyna við Roberto De Zerbi, stjóri Brighton á Englandi.

Thomas Tuchel mun yfirgefa Bayern eftir tímabilið en hann staðfesti ákvörðun sína í síðasta mánuði.

Bayern hefur unnið þýsku deildina ellefu ár í röð en það verður líklega breyting á því í vor. Leverkusen er með tíu stiga forystu á toppnum þegar átta umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner