Iraola vil halda Mac Allister og Alisson - Arsenal, Chelsea og Tottenham vilja Rashford - Arsenal hefur áhuga á Konsa
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   fös 11. október 2019 21:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kolbeinn: Lék þetta meistaralega
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við gáfum allt í þetta. Við vorum með tak á þeim í 0-0, en svo fá þeir þetta víti," sagði Kolbeinn Sigþórsson, framherji Íslands, eftir naumt tap gegn Heimsmeisturum Frakklands í undankeppni EM 2020 í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  1 Frakkland

„Mér fannst vanta pínu herslumuninn hjá okkur að komast í alvöru skotfæri eða koma boltanum fyrir - vinna seinni boltann. Við vorum samt að gera vel og mér fannst við eiga góðan leik. Við spiluðum vel þrátt fyrir tap."

Kolbeinn spilaði 90 mínútur í kvöld. „Ég er auðvitað mjög svekktur með tapið, en ég gaf allt í þennan leik og það er frábært að ég hafi náð að halda mér heilum. Ég gæti hafa sett persónulegt met í hlaupametrum frá því á EM. Það er margt jákvætt sem er að gerast hjá mér."

Kolbeini fannst vítaspyrna Frakka fremur ódýr þrátt fyrir snertingu.

„Hann hefði getað sleppt þessu víti, en hann kom við hann. Hann (Griezmann) lét þetta meistaralega," sagði Kolbeinn.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner