lau 09. nóvember 2019 22:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Rodgers: Mjög, mjög mikilvæg þrjú stig
Brendan Rodgers ánægður með sína menn.
Brendan Rodgers ánægður með sína menn.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers er að gera frábæra hluti með Leicester City, liðið er taplaust í síðustu fjórum deildarleikjum og situr nú í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Í kvöld höfðu þeir betur gegn Arsenal með mörkum frá Jamie Vardy og James Maddison.

„Frábær sigur hjá okkur gegn mjög góðu liði, við höfðum góð tök á þeim og spiluðum góðan fótbolta. Þetta lítur mjög vel út hjá okkur núna, leikmennirnir vita hvað þeir geta og að það skiptir engu máli hver andstæðingurinn er, þeir geta unnið hvaða lið sem er," sagði Rodgers.

„Við vorum að spila gegn góðu fótboltaliði með góðum leikmönnum, við þurftum að vera þolinmóðir, við gerðum það og kláruðum svo leikinn á frábæran hátt. Mjög, mjög mikilvæg þrjú stig," sagði Rodgers að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner