Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 12:34
Elvar Geir Magnússon
Andri Lucas framlengir við Blackburn
Andri Lucas hefur skorað 10 mörk í 39 landsleikjum fyrir Ísland.
Andri Lucas hefur skorað 10 mörk í 39 landsleikjum fyrir Ísland.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslenski landsliðssóknarmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen, framherji Blackburn, hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við félagið.

Andri Lucas kom til Blackburn frá belgíska félaginu Gent síðasta sumar og var sjóðandi heitur fyrir enska liðið milli október og desember þar sem hann skoraði sjö mörk í ellefu leikjum.

Hann meiddist svo og fór í ökklaaðgerð svo hann missti af síðasta hluta tímabilsins.

Andri Lucas hefur skorað 10 mörk í 39 landsleikjum fyrir Ísland.

„Ég er virkilega ánægður. Ég hef notið tíma míns hérna. Ég saknaði leikdagana og að æfa með strákunum meðan ég var meiddur. Ég er spenntur fyrir því að sýna meira af því hvað ég get gert," segir Andri Lucas, sem er 24 ára, og segist vera með það markmið að halda sér heilum á næsta tímabili og þá sé hann bjartsýnn á góðan fjölda marka og stoðsendinga.

Blackburn hafnaði í 20. sæti og náði að forðast fall úr Championship-deildinni.


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 46 28 11 7 97 45 +52 95
2 Ipswich Town 46 23 15 8 80 47 +33 84
3 Millwall 46 24 11 11 64 49 +15 83
4 Southampton 46 22 14 10 82 56 +26 80
5 Middlesbrough 46 22 14 10 72 47 +25 80
6 Hull City 46 21 10 15 70 66 +4 73
7 Wrexham 46 19 14 13 69 65 +4 71
8 Derby County 46 20 9 17 67 59 +8 69
9 Norwich 46 19 8 19 63 56 +7 65
10 Birmingham 46 17 13 16 57 56 +1 64
11 Swansea 46 18 10 18 57 59 -2 64
12 Bristol City 46 17 11 18 59 59 0 62
13 Sheffield Utd 46 18 6 22 66 66 0 60
14 Preston NE 46 15 15 16 55 62 -7 60
15 QPR 46 16 10 20 61 73 -12 58
16 Watford 46 14 15 17 53 65 -12 57
17 Stoke City 46 15 10 21 51 56 -5 55
18 Portsmouth 46 14 13 19 49 64 -15 55
19 Charlton Athletic 46 13 14 19 44 58 -14 53
20 Blackburn 46 13 13 20 42 56 -14 52
21 West Brom 46 13 14 19 48 58 -10 51
22 Oxford United 46 11 14 21 45 59 -14 47
23 Leicester 46 12 16 18 58 68 -10 46
24 Sheff Wed 46 2 12 32 29 89 -60 0
Slapp
banner
banner
banner
banner