Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Martínez gæti tekið við af Alisson
Emi Martínez til Liverpool?
Emi Martínez til Liverpool?
Mynd: EPA
Liverpool er alvarlega að íhuga þann möguleika að fá argentínska markvörðinn Emiliano Martínez í stað Alisson Becker í sumarglugganum.

Alisson hefur staðið á milli stanganna hjá Liverpool síðustu átta ár, en er sagður reiðubúinn að kveðja eftir tímabilið þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningnum.

Ítalska félagið Juventus hefur verið í viðræðum við föruneyti Alisson og er hann tilbúinn að samþykkja þriggja ára samning, en þetta veltur þó allt á því hvað Liverpool vill gera.

Ef Liverpool samþykkir að selja Alisson þá mun það fara í að finna arftaka hans, en TeamTalk segir félagið hafa mikinn áhuga á Martínez hjá Aston Villa.

Martínez hefur verið einn af bestu markvörðum ensku úrvalsdeildarinnar síðustu ár og þá var hann í marki Argentínumanna er þeir unnu HM í Katar árið 2022.

Markvörðurinn hefur lengi hugsað um að fara frá Villa. Á síðasta ári vildi hann fara til Manchester United, en endaði á að vera áfram eftir að United ákvað frekar að fá belgíska landsliðsmarkvörðinn Senne Lammens.
Slapp
banner
banner
banner