Það fóru nokkrir leikir fram hjá íslensku fótboltakonunum sem leika erlendis í dag. Þar komst Daníela Dögg Guðnadóttir á blað í stórsigri Aalesund í norska bikarnum.
Daníela Dögg skoraði eitt af sex mörkum Aalesund sem rúllaði yfir neðrideildalið Kil/Hemne. Liðin mættust í 32-liða úrslitum bikarsins og urðu lokatölur 1-6.
Molde lagði þá Tiller að velli og var Marie Jóhannsdóttir í byrjunarliðinu. Molde lenti undir í fyrri hálfleik en svaraði með þremur mörkum eftir leikhlé, lokatölur 1-3.
Í efstu deild sænska boltans varði Fanney Inga Birkisdóttir mark BK Häcken í sigri á útivelli gegn AIK. AIK náði forystunni í fyrri hálfleik með sjálfsmarki hjá Fanneyju en Häcken var sterkari aðilinn og snéri stöðunni við svo lokatölur urðu 1-2.
Hacken er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir í sænsku deildinni, tveimur stigum fyrir ofan Malmö sem er með 10 stig eftir 5 umferðir. Häcken er ríkjandi meistari í Svíþjóð og vann Evrópubikar kvenna á dögunum eftir úrslitaleik við samlanda sína í Hammarby.
Hin 18 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir kom inn af bekknum á 83. mínútu í sigrinum.
Í spænska boltanum lék Hildur Antonsdóttir allan leikinn í 2-0 sigri hjá Madrid gegn Sevilla. Madrid siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar, með 34 stig eftir 28 leiki þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Í Þýskalandi lék Emilía Kiær Ásgeirsdóttir fyrstu 83 mínúturnar í tapi hjá RB Leipzig á heimavelli gegn Bayer Leverkusen. Leipzig siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar fyrir lokaumferðina.
Að lokum kom einn Íslendingur við sögu í næstefstu deild í Noregi þegar Odd hafði betur gegn Egersund. Hinrik Harðarson fékk að spreyta sig síðustu mínútur leiksins.
Odd er á toppi deildarinnar með 16 stig eftir 6 fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
Kil/Hemne 1 - 6 Aalesund
Tiller 1 - 3 Molde
AIK 1 - 2 Hacken
Madrid 2 - 0 Sevilla
RB Leipzig 1 - 3 Bayer Leverkusen
Odd 0 - 1 Egersund






