Diljá Ýr Zomers og Sædís Rún Heiðarsdóttir voru á skotskónum í 32-liða úrslitum norska bikarsins í kvöld.
Diljá skoraði þriðja mark Brann í 5-1 stórsigri liðsins á Sogndal. Hún gerði markið eftir rúman hálftímaleik.
Henni var skipt af velli snemma í síðari hálfleiknum í fremur öruggum sigri.
Sædís Rún skoraði tvennu fyrir Vålerenga í 8-1 sigri á Ham/Kam, en hún gerði þriðja og fimmta markið fyrir bikarmeistarana. Arna Eiríksdóttir var á bekknum hjá Vålerenga.
Selma Sól Magnúsdóttir kom þá inn af bekknum í 15-0 slátrun Rosenborg á Malvik. Þetta var hennar fyrsti leikur á tímabilinu, en hún var að snúa aftur eftir erfið meiðsli.
María Catharina Ólafsdóttir Gros var í byrjunarliði Djurgården sem tapaði fyrir Hammarby, 1-0, í sænsku úrvalsdeildinni. Guðrún Arnardóttir var ekki með Hammarby vegna meiðsla.
Hammarby er á toppnum með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir en Djurgården í 10. sæti með 4 stig.




