Sjónvarpsfyrirtækið Sýn og ÍTF hafa undirritað samning um eins árs framlengingu á sýningarrétti frá Bestu deild karla og Bestu deild kvenna til loka ársins 2027.
Í fréttatilkynningu segir að framlengingin tryggi órofið samstarf aðila á meðan viðræður um nýjan langtímasamning haldi áfram.
Í fréttatilkynningu segir að framlengingin tryggi órofið samstarf aðila á meðan viðræður um nýjan langtímasamning haldi áfram.
Þar er einnig sagt að deildirnar hafi tekið umtalsverðum framförum, áhorfendum á völlum fjölgað og staða íslenskra félagsliða á styrkleikalista UEFA styrkst.
„Bestu deildirnar skipa veigamikinn sess í dagskrá Sýnar Sports og samningurinn er mikilvægur áfangi í löngu og farsælu samstarfi Sýnar og íslenskrar knattspyrnu," segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttastjóri Sýnar.

