Fótboltasamband Wales reiknar fastlega með því að Craig Bellamy verði áfram þjálfari karlalandsliðs þjóðarinnar, þrátt fyrir áhuga Burnley.
Burnley er í stjóraleit eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni en Scott Parker yfirgaf félagið. Bellamy þekkir Burnley vel en hann var aðstoðarmaður Vincent Kompany þegar hann stýrði liðinu.
Burnley er í stjóraleit eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni en Scott Parker yfirgaf félagið. Bellamy þekkir Burnley vel en hann var aðstoðarmaður Vincent Kompany þegar hann stýrði liðinu.
Æðstu menn velska fótboltasambandsins hafa rætt við Bellamy og telja næsta víst að hann verði áfram út samning sinn, sem er til 2028.
Bellamy vill stýra þjóð sinni á EM 2028 sem fram fer á Bretlandseyjum, þar á meðal í Wales. Hann hefur þó ekki farið leynt með það markmið sitt að stýra félagsliði í framtíðinni.
Wales tókst ekki að komast á HM sem fram fer í sumar.
Fyrrum liðsfélagi Bellamy hjá Liverpool, Steven Gerrard, hefur einnig verið sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá Burnley.



