50 ÁRA AFMÆLISTREYJA ÍK 1976-1991
Í tilefni af 50 ára afmæli Íþróttafélags Kópavogs (ÍK), sem starfaði í bænum á árunum 1976–1991 og lagði grunninn að knattspyrnudeild HK, hefur Macron hannað sérstaka afmælistreyju með nokkrum fyrrverandi leikmönnum félagsins.
Um er að ræða góðgerðatreyju og rennur allur hagnaður af sölu hennar til barna- og unglingastarfs HK. Treyjan verður gefin út á haustdögum 2026, en forpöntun er hafin á Macron.is.
Í tilefni af 50 ára afmæli Íþróttafélags Kópavogs (ÍK), sem starfaði í bænum á árunum 1976–1991 og lagði grunninn að knattspyrnudeild HK, hefur Macron hannað sérstaka afmælistreyju með nokkrum fyrrverandi leikmönnum félagsins.
Um er að ræða góðgerðatreyju og rennur allur hagnaður af sölu hennar til barna- og unglingastarfs HK. Treyjan verður gefin út á haustdögum 2026, en forpöntun er hafin á Macron.is.
REYKOFNINN OG MORGAN KANE
Góðgerðatreyjan er innblásin af upprunalegum litum og sögu ÍK. Styrktaraðilinn framan á er Reykofninn, sem var langlífasti bakhjarl ÍK. Letrið á treyjunni er innblásið af bókunum um Morgan Kane eftir Louis Masterson, en Prenthúsið var dyggur styrktaraðili ÍK í nokkur ár.
OPIÐ FYRIR FORPÖNTUN
Treyjan verður einvörðungu seld á vef Macron. Hún kemur takmörkuðu upplagi og einungis í síðerma útgáfu. Hægt er að forpanta treyjuna á vef Macron fram til 1. júní 2026. Við forpöntun er bæði hægt að skrá nafn og númer treyjueiganda, en einnig nafn leikmanns, iðkanda eða fornfrægs sjálfboðaliða sem verður prentað með fíngerðu letri inn í grænar rendur treyjunnar.
MÁTUN OG AFHENDING
Hægt er að máta sambærilegar treyjur í öllum stærðum hjá Macron við Skútavog (opið 10-17 virka daga). Treyjan verður afhent í lok ágúst.
AFMÆLISLEIKUR 5. SEPTEMBER
Afmælistreyjan verður kynnt sérstaklega á afmælisviðburðum á árinu og munu bæði fyrrverandi leikmenn ÍK og fulltrúar úr HK-samfélaginu í dag taka þátt í að heiðra þennan litla en mikilvæga kafla í sögu íslenskrar knattspyrnu. Sérstakur afmælisleikur verður laugardaginn 5. september 2026 þegar HK og Fylkir etja kappi í Lengjudeild karla. Afmælistreyjan verður keppnisbúningur HK þann dag.
AFMÆLISFÖGNUÐUR
Þess má geta að fyrirhugað er að blása til upphitunar og eftirmála kringum leikinn og líklegt að 50 ára afmæli ÍK heitins verði fagnað um kvöldið.
LITIRNIR FRÁ CELTIC
Við þróun treyjunnar var lögð áhersla á að halda í söguleg einkenni félagsins. Litasamsetning ÍK kemur upphaflega frá knattspyrnuliðinu Celtic í Skotlandi, en Jóhannes Eðvaldsson, þáverandi leikmaður skoska liðsins, kom að stofnun ÍK gegnum vinskap sinn við upphafsmenn félagsins og útvegaði þeim búninga. Á sama tíma er notast við nútímaleg efni og snið frá ítalska íþróttavöruframleiðandanum Macron. Útkoman er skemmtileg afmælisútgáfa sem endurspeglar bæði stolta fortíð og sterka framtíðarsýn íþróttastarfs í Kópavogi.
VIRÐINGARVOTTUR
Treyjan er hugsuð sem virðingarvottur við hugsjónafólkið sem byggði upp öflugt íþróttastarf í Kópavogi á sínum tíma. Með hönnuninni er brúað bil milli kynslóða; þeirra sem muna eftir ÍK á vellinum og nýrrar kynslóðar iðkenda og stuðningsfólks HK sem nýtur arfleifðar félagsins í dag.


