Spænska félagið Barcelona hefur ekki enn tekið ákvörðun varðandi enska framherjann Marcus Rashford, en það gæti vel farið svo að hann snúi aftur til Manchester United þegar lánssamningur hans rennur út í næsta mánuði.
Börsungar fengu Rashford á láni með möguleika á að kaupa hann fyrir 26 milljónir punda.
Félagið hefur reynt að prútta um verðið en United haggast ekki og er líklegasta niðurstaðan að hann fari aftur til Englands.
Hansi Flick, þjálfari Barcelona, er mikill aðdáandi Rashford, en segist ekki geta sagt til um hvort hann haldi kyrru fyrir eða ekki.
„Ég hef áður sagt að við munum greina allt í lok tímabils og sjá síðan hvað gerist.“
„Fyrir mína parta þá kann ég svo mikið að meta hann. Hann hefur verið stórkostlegur á þessu tímabili og skilað góðum tölum. Ég er þakklátur fyrir það,“ sagði Flick.
Rashford skoraði seinna mark Börsunga í 2-0 sigrinum á Real Madrid um helgina, en sigurinn tryggði liðinu Spánarmeistaratitilinn annað árið í röð.

