Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker mun að öllum líkindum snúa aftur í leikmannahóp Liverpool sem heimsækir Aston Villa um helgina.
Alisson, sem er 33 ára gamall, hefur verið frá vegna meiðsla síðustu tvo mánuði og hafa þeir Giorgi Mamardashvili og Freddie Woodman deilt markvarðarstöðunni í fjarveru hans.
Samkvæmt Cahe Mota, blaðamanni GloboEsporte, mun Alisson snúa aftur í hópinn gegn Villa um helgina.
Hann segir þó óvíst hvort Alisson fari beint í byrjunarliðið eða hvort Liverpool fari öruggu leiðina og leyfi honum að spila í lokaumferðinni gegn Brentford.
Sá leikur yrði líklega hans síðasti í treyju Liverpool, en hann hefur verið sterklega orðaður við ítalska stórliðið Juventus.
Alisson er samningsbundinn Liverpool til 2027, en Liverpool er talið opið fyrir því að selja hann í sumar.


