Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   mið 13. maí 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Skoraði í síðustu umferð og framlengir samninginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Axel Ingi Jóhannesson, leikmaður Keflavíkur, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára.

Axel, sem er fæddur árið 2004, er uppalinn Keflvíkingur sem hefur leikið með meistaraflokki síðan 2021.

Hann lék 24 leiki og skoraði eitt mark er Keflavík vann sér sæti í Bestu deildina á síðasta ári og fer þá frábærlega af stað á þessu tímabili.

Á föstudaginn skoraði hann fyrsta mark sitt á tímabilinu er hann gerði annað mark Keflvíkinga í 3-1 sigri á ÍA.

Axel fagnaði markinu með því að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við Keflavík, en félagið greindi frá þessum tíðindum á Facebook í gær.

Frábærar fréttir fyrir Keflavík sem hefur komið á óvart í upphafi tímabils, en það er í 7. sæti með 6 stig eftir sex umferðir.


Slapp
banner
banner