Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 21:20
Brynjar Ingi Erluson
Þriðja tapið í röð hjá Loga og Túfa - Útlitið svart hjá Davíð
Logi Hrafn er fastamaður í liði Värnamo
Logi Hrafn er fastamaður í liði Värnamo
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænska liðið Värnamo tapaði þriðja leiknum í röð í sænsku B-deildinni í dag.

Värnamo hefur gengið illa að ná í stig í síðustu umferð eftir annars góða byrjun á tímabilinu.

Logi Hrafn Róbertsson byrjaði hjá Värnamo sem fékk á sig sigurmark undir lok leiks.

Srdjan Tufegdzic, fyrrum þjálfari Grindavíkur, KA og Vals, er þjálfari Värnamo sem er í 9. sæti með 9 stig.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn af bekknum í hálfleik í 1-0 tapi Gwangju gegn toppliði Seoul í suður-kóresku deildinni. Gwangju er á botninum með aðeins 7 stig.

Davíð Kristján Ólafsson og félagar í AEL Larissa eru á barmi falls eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Panetolikos í fallriðli grísku úrvalsdeildarinnar.

Blikinn kom inn á í hálfleik og tólf mínútum síðar komst Larissa yfir, en liðið fékk á sig jöfnunarmark seint í uppbótartíma sem var þungt högg fyrir Larissa.

Þetta þýðir að liðið er áfram á botninum með 27 stig, fimm stigum frá öruggu sæti þegar tvær umferðir eru eftir.
Slapp
banner
banner