Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 23:27
Ívan Guðjón Baldursson
Alisson leyfir Liverpool að ráða
Mynd: EPA
Mikið hefur verið rætt og ritað um möguleg félagaskipti brasilíska markvarðarins Alisson Becker frá Liverpool til Juventus.

33 ára gamall Alisson, sem verður 34 ára í október, er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir þriggja ára samningi hjá Juventus en hann ætlar ekki að fara fram á sölu.

Juve er talið vera reiðubúið til að borga um 15 milljónir evra til að kaupa Alisson í sínar raðir en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi við Liverpool.

Alisson er tilbúinn að skipta um félag en hann ætlar að leyfa Liverpool að taka lokaákvörðunina. Hann elskar félagið og veit að það er mikilvægt sumar framundan þar sem Mohamed Salah og Andy Robertson eru báðir á förum.

Framtíð Alisson er því í höndum Liverpool.

   10.05.2026 17:07
Alisson færist nær Juventus


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner