Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 20:22
Brynjar Ingi Erluson
Fagnaðarlátum Ronaldo og félaga frestað - Markvörðurinn skúrkurinn á lokasekúndunum
Cristiano Ronaldo fékk ekki að fagna titlinum í kvöld
Cristiano Ronaldo fékk ekki að fagna titlinum í kvöld
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo og félagar í Al Nassr þurfa að bíða í nokkra daga í viðbót til þess að fagna deildarmeistaratitlinum eftir að hafa gert dramatískt 1-1 jafntefli við erkifjendur sína í Al Hilal í kvöld.

Ronaldo kom til Al Nassr í lok árs 2022 en hann var að vinna sinn fyrsta deildartitil með liðinu.

Al Nassr þurfti sigur til að tryggja titilinn. Franski varnarmaðurinn Mohamed Simakan kom Al Nassr yfir á 37. mínútu með skoti úr miðjum teignum eftir hornspyrnu.

Nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum þegar brasilíski markvörðurinn Bento kýldi fyrirgjöf í eigið net. Mjög klaufalegt hjá Bento sem var kominn langt út úr markinu og kýldi boltann aftur fyrir sig og í netið.

Ronaldo var eins og venjulega í byrjunarliði Al Nassr en var tekinn af velli undir lok leiks.

Al Nassr er enn í lykilstöðu um titilinn. Liðið er með fimm stiga forystu á Al Hilal sem á tvo leiki eftir.

Á laugardag mun Al Hilal mæta Neom. Ef liðið tapar stigum þar mun Al Nassr vinna titilinn en ef þeir vinna mun deildin ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni sem fer fram 21. maí.


Slapp
banner
banner