Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 18:51
Elvar Geir Magnússon
Advocaat snýr aftur og verður elsti þjálfari HM sögunnar
Mynd: EPA
Eyríkið Curacao í Karíbahafi verður fámennasta þjóð HM sögunnar þegar landslið þjóðarinnar spilar á HM í sumar. Það búa aðeins um 150 þúsund á Curacao.

Curacao verður að auki með elsta þjálfara HM sögunnar því hinn 78 ára gamli Dick Advocaat stýrir liðinu á mótinu. Þetta hefur formaður fótboltasambands Curacao staðfest.

Advocaat skráði sig í sögubækurnar með því að koma Curacao á HM en hann lét svo af störfum af persónulegum ástæðum, vegna heilsufarsvandamála hjá dóttur hans.

Fred Rutten tók þá við liðinu en óánægja var með hans störf; liðið tapaði fyrir Kína 2-0 og Ástralíu 5-1 í vináttulandsleikjum í mars. Rutten hefur nú vikið og Advocaat er mættur aftur en staðan á dóttur hans er orðin betri.

Curacao er með Þýskalandi, Ekvador og Fílabeinsströndinni í riðli á HM í sumar.

Advocaat hefur víða komið við á löngum ferli, meðal annars hefur hann þrívegis tekið við landsliði Hollands og einnig stýrt Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Írak og Serbíu.


Slapp
banner