Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 07:20
Elvar Geir Magnússon
Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Ederson orðaður við Man Utd
Powerade
Jarrod Bowen leikmaður West Ham.
Jarrod Bowen leikmaður West Ham.
Mynd: EPA
Ederson er orðaður við Man Utd.
Ederson er orðaður við Man Utd.
Mynd: EPA
Mörg félög hafa áhuga á fyrirliða West Ham, Liverpool er orðað við leikmenn Mónakó og Manchester United gæti gert tilboð í miðjumann Atalanta. Þetta og ýmislegt fleira í slúðurpakkanum á þessum fallega þriðjudegi.

Ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool, Newcastle og Everton vilja fá enska landsliðsmanninn Jarrod Bowen (29), líka þó West Ham haldi sæti sínu. (Mail)

Liverpool hefur áhuga á Maghnes Akliouche (24), hægri kantmanni Mónakó. Franski landsliðsmaðurinn er verðmetinn á um 43 milljónir punda. Liðsfélagi hans Lamine Camara (22) er einnig á radarnum hjá Liverpool en senegalski miðjumaðurinn er einnig á blaði hjá Newcastle. (L'Equipe)

Juventus íhugar að reyna að fá sóknarmanninn Nicolas Jackson (24) lánaðan frá Chelsea. Senegalski landsliðsmaðurinn er á láni hjá Bayern München en verður ekki hjá Þýskalandsmeisturnum á næsta tímabili. (Bild)

Real Madrid þarf líklega að selja leikmenn áður en félagið fær inn nýja leikmenn. Spænski miðjumaðurinn Dani Ceballos (29) er meðal leikmanna sem þeir gætu reynt að losa. (The Athletic)

West Ham hefur sett 84 milljóna punda verðmiða á portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes (21) en Manchester United og Paris St-Germain eru meðal félaga sem hafa áhuga. (Football Insider)

Manchester United íhugar að gera tilboð í brasilíska miðjumanninn Ederson (26) hjá Atalanta sen hann gæti verið fáanlegur fyrir um 40 milljónir punda. (Manchester Evening News)

Hansi Flick stjóri Barcelona hefur samþykkt nýjan samning til 2028 með framlengingu á ári til viðbótar. (Mundo Deportivo)

Manchester United ætlar að kaupa að minnsta kosti fimm leikmenn í sumar, þar af þrjá miðjumenn, vinstri bakvörð og sóknarmann. (Sun)

Aston Villa horfir til tveggja markvarða í frösnku deildinni sem gætu fyllt skarð Emi Martínez ef Argentínumaðurinn fer í sumar. Það eru Robin Risser hjá Lens og Guillaume Restes hjá Toulouse (báðir 21). (Foot Mercato)

Liverpool og Chelsea hafa áhuga á portúgalska miðjumanninum Trincao (26) hjá Sporting Lissabon. (Caught Offside)

Miðjumaðurinn Noah Sadiki (21) útilokar ekki að yfirgefa Sunderland í sumar. (Voetbal Nieuws)
Slapp
banner
banner