Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 18:43
Brynjar Ingi Erluson
Gagnrýnir valið á sænska landsliðshópnum - „Huglaust“
Roony Bardghji er ekki í hópnum
Roony Bardghji er ekki í hópnum
Mynd: Barcelona
Hugo Larsson er ekki í plönum Potter
Hugo Larsson er ekki í plönum Potter
Mynd: EPA
Graham Potter, þjálfari sænska landsliðsins, tilkynnti landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið í dag, en valið kom mörgum á óvart.

Potter ákvað að skilja þá Roony Bardghji, Hugo Larsson og Williot Swedberg eftir heima.

Roony er 20 ára gamall sóknarmaður sem er á mála hjá Barcelona á Spáni. Hann hefur komið að sex mörkum í 26 leikjum með Börsungum á tímabilinu, en mínúturnar þó verið af skornum skammti.

Hann er samt sem áður talinn einn allra efnilegasti leikmaður Svía og kemur á óvart að hann sé ekki í hópnum hjá Potter. Larsson, sem er 21 árs gamall leikmaður Eintracht Frankurt, er ekki heldur í hópnum og þá vantar Swedberg sem er 22 ára gamall leikmaður Celta Vigo.

John Guidetti, fyrrum landsliðsmaður Svía, gagnrýnir valið harðlega.

„Ég átta mig ekki alveg á þessu. Þú getur ekki fengið leikmann sem spilar í þýsku B-deildinni í staðinn fyrir einhvern sem var að vinna La Liga með Barcelona. Það sýður á mér!“

„Þú fjarlægir leikmennina sem eru með einhvern karakter, allt leikmenn sem þú ert hræddur um að geti skapað slæmt andrúmsloft. Það er þitt hlutverk sem þjálfari landsliðsins að tryggja það að þú sért með bestu leikmennina.“

„Mér finnst þetta vera huglaust val,“
sagði Guidetti á TV4.
Slapp
banner
banner