Ólöf Sigríður Kristinsdóttir spilaði sinn fyrsta leik þetta sumarið þegar Breiðablik vann 2-4 útisigur gegn Víkingi í síðustu viku. Hún kom inn af bekknum og var fljót að láta til sín taka með marki.
Olla Sigga sleit krossband sumarið 2024 og spilaði því ekkert með Blikum í fyrra. Hún er í námi við hinn virta Harvard háskóla í Bandaríkjunum þar sem hún spilar jafnframt með skólaliðinu en hún er núna komin heim yfir sumarið.
Olla Sigga sleit krossband sumarið 2024 og spilaði því ekkert með Blikum í fyrra. Hún er í námi við hinn virta Harvard háskóla í Bandaríkjunum þar sem hún spilar jafnframt með skólaliðinu en hún er núna komin heim yfir sumarið.
Þetta skapar ákveðið lúxusvandamál fyrir Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks. Bryndís Arna Níelsdóttir er gengin í raðir félagsins og er að stíga upp úr meiðslum. Bryndís og Olla Sigga, sem hafa báðar verið í A-landsliðinu, komu inn af bekknum gegn Víkingi en ungir og efnilegir leikmenn hafa borið uppi sóknarleik Blika í upphafi tímabilsins ásamt Öglu Maríu Albertsdóttur.
„Þetta er kannski hausverkur sem þú ert tilbúinn að vera með fyrir tímabilið en núna þegar búið er að ganga virkilega vel og fremstu leikmenn hafa spilað vel, þá ertu kominn með tvo leikmenn þarna sem eiga landsleiki og eru að banka á dyrnar hjá þér," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum.
„Það verður gaman að sjá hvernig hann (Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks) tekst á við það að halda þeim sáttum mögulega á bekknum eða þá að kippa leikmönnum út sem hafa verið að spila virkilega vel."
Hægt er að hlusta á allan þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.

