Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Íhugaði aldrei að leggja skóna á hilluna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franski bakvörðurinn Ferland Mendy fór í vel heppnaða aðgerð í dag eftir að hafa meiðst aftan á læri í leik Real Madrid gegn Espanyol fyrir rúmri viku.

Í fyrstu var talið að Mendy, sem hefur verið að glíma við sífellt erfiðari meiðsli síðustu árin, yrði frá keppni í fimm mánuði en svo var greint frá því í spænskum fjölmiðlum að meiðslin væru verri en virtist við fyrstu sýn.

Einhverjir miðlar greindu frá því að Mendy, sem verður 31 árs í sumar, væri að íhuga að leggja skóna á hilluna.

Eftir að hafa rætt við heimildarmenn sem eru nákomnir bakverðinum segir Fabrizio Romano fregnirnar vera ósannar. Mendy hafi á engum tímapunkti skoðað að leggja skóna á hilluna.

Líklegt er að Mendy verði frá keppni í eitt ár vegna meiðslanna.

   07.05.2026 18:55
Mendy lengur frá en talið var í fyrstu - Íhugar að leggja skóna á hilluna

Slapp