Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
banner
   þri 12. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Harpa leggur skóna á hilluna - Tekur sæti í stjórn
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Harpa Ásgeirsdóttir er búin að leggja skóna á hilluna eftir 20 ár með Völsungi.

Harpa er goðsögn á Húsavík þar sem hún skoraði 64 mörk í 210 leikjum fyrir meistaraflokk Völsungs í deild og bikar auk þess að hafa verið einstök fyrirmynd fyrir unga iðkendur.

Harpa hóf ferilinn með Þór og lék einnig fyrir ÍR, Aftureldingu og KR en var alltaf fljót að snúa aftur norður.

Harpa var kvödd um helgina þegar Völsungur tapaði 0-1 á heimavelli gegn KR og var henni þakkað fyrir ómetanlegt framlag til félagsins.

Dóttir Hörpu, Ísabella Anna Kjartansdóttir, er fædd 2011 og er partur af leikmannahópi Völsungs. Hún er með þrjá landsleiki að baki fyrir U15 liðið og þykir afar efnileg. Þær mæðgurnar léku nokkra leiki saman með meistaraflokki Völsungs.

Þó að Harpa sé búin að leggja skóna á hilluna þá mun hún halda áfram að starfa í þágu Völsungs og hefur meðal annars tekið sæti í stjórn félagsins.


Slapp
banner
banner