Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dóri skaut á Óla - „Finnst skilaboðin í þessu viðtali tvíræð"
Halldór gagnrýndi eftirmann sinn.
Halldór gagnrýndi eftirmann sinn.
Mynd: Samsett
'Hendir Höskuldi fyrir rútuna
'Hendir Höskuldi fyrir rútuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi tók við Breiðabliki í október í fyrra.
Ólafur Ingi tók við Breiðabliki í október í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í Stúkunni í gær, þar sem umferðin í Bestu deildinni var gerð upp á SÝN Sport, gagnrýndi Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, Ólaf Inga Skúlason sem er núverandi þjálfari Breiðabliks. Halldór var látinn fara síðasta haust og var Ólafur Ingi ráðinn í hans stað.

Halldór, sem er sérfræðingur í þættinum, gagnrýndi Ólaf fyrir viðtalið sem hann veitti á SÝN Sport eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  3 FH

„Ef þú hefðir heyrt hálfleiksræðuna þá gekk hún mikið út á það að slaka ekki á heldur frekar að gefa í. Ég er bara hundfúll með að gera jafntefli hérna á heimavelli. Við vorum töluvert betri aðilinn í fyrri hálfleik og erum bara búnir að koma okkur í góða stöðu í hálfleik. Svo erum við bara barnalegir í seinni hálfleik og gerum mistök sem kosta okkur leikinn. Við byrjuðum að bjóða þeim upp á einhverja líflínu og þeir fengu orku í kjölfarið,“ sagði Ólafur Ingi við Kolbein Kristinsson. Breiðablik var yfir í hálfleik, 2-0, en lenti 2-3 undir í seinni hálfleiknum.

„Þeir fá þetta víti og svo kemur annað mark í kjölfarið sem er í rauninni akkúrat öfugt við það sem við ætluðum okkur. Við ætluðum bara að drepa þennan leik og ekki bjóða þeim í neinn dans heldur bara klára þetta. En því miður þá vorum við bara barnalegir og sjálfum okkur ólíkir frá byrjun seinni hálfleiks og þangað til við lentum undir,“ sagði Ólafur Ingi í viðtalinu. Viðtal hans við Fótbolta.net má sjá hér neðst.

Halldóri fannst skilaboð Ólafs í viðtalinu tvíræð.

„Hann segir að þeir hafi talað um það í hálfleik að gefa enn meira í og klára leikinn. En svo fer hann heilan hring og talar um að þeir hafi ætlað að drepa leikinn og talar um að þeir hafi tapað þessu niður vegna þess að þeir tapa boltanum í uppspili og hendir Höskuldi undir rútuna. Hvort ætluðu þeir að gera, drepa leikinn eða klára hann? Ég hefði viljað sjá Breiðablik stúta þessum leik, FH er lið sem hefur verið auðvelt að spila í gegnum í sumar. Mér finnst skilaboðin í þessu viðtali tvíræð," sagði Halldór í þættinum.

Mörkin má sjá hér að neðan og það var Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, sem missti boltann klaufalega átta sekúndum áður en FH minnkaði muninn með marki frá Gils Gíslasyni.

Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur um starfið
Slapp
banner
banner
banner