Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 09. október 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pique líkt við Figo - Heilsaði upp á samkeppnina
Mynd: Getty Images
Grís á vappi.
Grís á vappi.
Mynd: Getty Images
Gerard Pique nýtur landsleikjahlésins og kíkti í spjallþáttinn El Hormiguero á dögunum.

Hann mætti fyrir stuttu í samskonar þátt La Resistencia og gerði sá þáttur grín að Pique fyrir að fara í El Hormiguero. La Resistencia líkti Pique við Luis Figo fyrir að heilsa upp á samkeppnina.



Pique svaraði með „Og svínið?" og vitnaði þar í atvik þegar Figo tók hornspyrnu fyrir Real á Nou Camp. Lestu meira um það mál á vef BBC.

La Resistencia hafði ekki lokið leik en aðgangurinn sagði Pique að leita að svínsvhöfðinu við hornfánann á Anfield og gerði þar með grín að sofandahætti Barcelona varnarinnar í 4-0 tapinu gegn Liverpool í vor.


Athugasemdir
banner
banner