Munoz, Gallagher og Adams orðaðir við Man Utd - Man City vill fá Marc Guehi
   sun 10. nóvember 2019 21:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Dybala kom inn á fyrir Ronaldo og var hetjan
Paulo Dybala skoraði sigurmark Juventus gegn AC Milan er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Dybala kom inn á sem varamaður fyrir Cristiano Ronaldo, sem átti slakan leik, á 55. mínútu og skoraði Argentínumaðurinn eina mark leiksins á 77. mínútu. Dybala lék á Romagnoli og kláraði færi sitt vel.

Milan var ekki verri aðilinn í leiknum, en það er ekki alltaf spurt að því í fótbolta.

Juventus eru á toppi Seríu A með 32 stig, einu stigi meira en Inter. Milan er í 14. sæti með 13 stig.

Hér að neðan má sjá önnur úrslit dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni. Óvænt úrslit voru í Parma þar sem heimamenn höfðu betur gegn Roma.

Juventus 1 - 0 Milan
1-0 Paulo Dybala ('77 )

Lazio 4 - 2 Lecce
1-0 Joaquin Correa ('30 )
1-1 Gianluca Lapadula ('40 )
2-1 Sergej Milinkovic-Savic ('62 )
2-1 Khouma Babacar ('67 , Misnotað víti)
3-1 Ciro Immobile ('78 , víti)
4-1 Joaquin Correa ('80 )
4-2 Andrea La Mantia ('85 )

Parma 2 - 0 Roma
1-0 Mattia Sprocati ('68 )
2-0 Andreas Cornelius ('90 )

Sampdoria 0 - 0 Atalanta
Rautt spjald:Ruslan Malinovskiy, Atalanta ('75)

Udinese 0 - 0 Spal
0-0 Andrea Petagna ('90 , Misnotað víti)

Sjá einnig:
Ítalía: Cagliari skoraði fimm gegn Fiorentina
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 15 11 0 4 34 14 +20 33
2 Milan 15 9 5 1 24 13 +11 32
3 Napoli 15 10 1 4 22 13 +9 31
4 Roma 15 10 0 5 16 8 +8 30
5 Juventus 15 7 5 3 19 14 +5 26
6 Bologna 15 7 4 4 23 13 +10 25
7 Como 15 6 6 3 19 12 +7 24
8 Lazio 15 6 4 5 17 11 +6 22
9 Sassuolo 15 6 3 6 21 19 +2 21
10 Udinese 15 6 3 6 16 22 -6 21
11 Cremonese 15 5 5 5 18 18 0 20
12 Atalanta 15 4 7 4 19 18 +1 19
13 Torino 15 4 5 6 15 26 -11 17
14 Lecce 15 4 4 7 11 19 -8 16
15 Cagliari 15 3 5 7 15 21 -6 14
16 Genoa 15 3 5 7 16 23 -7 14
17 Parma 15 3 5 7 10 18 -8 14
18 Verona 15 2 6 7 13 22 -9 12
19 Pisa 15 1 7 7 10 20 -10 10
20 Fiorentina 15 0 6 9 12 26 -14 6
Athugasemdir