Það er farin að myndast mikil spenna í Þorpinu fyrir fyrsta leik Þórs í efstu deild í 12 ár en liðið hefur leik gegn Val á Hlíðarenda á sunnudaginn.
Fótbolti.net ræddi við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, á kynninigarfundi Bestu deildarinnar í gær um komandi tímabil.
Fótbolti.net ræddi við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, á kynninigarfundi Bestu deildarinnar í gær um komandi tímabil.
„Það er stórkostlegt. Langt síðan félagið var í efstu deild. Miðað við stemninguna og fagnaðarlætin og allt í kringum það að vinna deildina í fyrra lætur mig trúa því að klúbburinn og stuðningsmennirnir séu allir rosalega spenntir," sagði Siggi.
„Við þurfum líka að sýna að við getum ekki verið mættir á stóra sviðið og glemyt að mæta á völlinn og styðja liðið, ég hefði viljað fá fleira fólk og meiri læti á bikarleikinn á móti FH. Ég trúi ekki öðru en að stuðningsmennirnir séu að gera sig klára í þetta og það verði svipuð stemning ef ekki betri en hún var undir lokin á síðasta tímabili."
„Það er stutt á milli í þessu og allir Þórsarar þurfa að njóta þess að vera komnir upp, ekki vera skíthræddir og gleyma því að við erum alvöru klúbbur sem ætlar að festa sig í efstu deild. Ég var fenginn til að koma liðinu upp og nú er það komið upp. Við gerum okkur grein fyrir því að við erum líklega með minnsta 'budgetið' í deildinni og við þurfum að halda rétt á spilunum, við þurfum alla með okkur og stuðningsmennirnir okkar vita að þeir eru algjör lykill að því að okkur gangi vel í sumar."
„Við erum með mikið af ungum leikmönnum sem verða með stórt hlutverk, Þórsurum, leikmenn sem stuðningsmenn okkar ættu að geta tengt vel við. Ég held að Þórsarar geti verið spenntir fyrir því á hverju við erum að byggja þetta og funið samnefnara í því hvað hinn almenni Þórsari vill að við stöndum fyrir."
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)



