Lokaumferð spænska deildartímabilsins fór fram í kvöld og er ljóst hvaða lið falla og hvaða lið komast í Evrópu.
Real Oviedo var fallið fyrir lokaumferðina og eru það Girona og Mallorca sem falla niður um deild ásamt botnliðinu. Girona fellur eftir jafntefli á heimavelli gegn Elche í kvöld á meðan Mallorca fellur þrátt fyrir 3-0 sigur á Real Oviedo.
Girona endar með 41 stig og er Mallorca með 42 stig, alveg eins og Osasuna og Levante sem eiga betri árangri að fagna í innbyrðisviðureignum liðanna.
Levante hafði betur í innbyrðisviðureignum sínum gegn Mallorca á meðan Osasuna og Mallorca skildu jöfn í sínum viðureignum. Þá hafði Osasuna betur í innbyrðisviðureignum gegn Levante og því fellur Mallorca.
Getafe tryggði sér þá síðasta Evrópusætið með sigri gegn Osasuna og fer liðið í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir sumarfrí.
Celta Vigo fer í Evrópudeildina ásamt bikarmeisturum Real Sociedad og voru önnur lið öll búin að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir lokaumferðina.
Spánarmeistarar Barcelona töpuðu á útivelli gegn Valencia á meðan Real Madrid skoraði fjögur gegn Athletic Bilbao í kveðjuleik Álvaro Arbeloa.
Orri Steinn Óskarsson hefur verið í stuði eftir endurkomu úr meiðslum og skoraði eina mark Real Sociedad í þýðingarlitlu jafntefli gegn Espanyol. Þetta var fjórða mark Orra í síðustu sex deildarleikjum sem hann hefur spilað.
Girona 1 - 1 Elche
0-1 Alvaro Rodriguez ('39 )
1-1 Martinez Arnau ('48 )
Valencia 3 - 1 Barcelona
0-1 Robert Lewandowski ('61 )
1-1 Javier Guerra Moreno ('66 )
2-1 Luis Rioja ('71 )
3-1 Guido Rodriguez ('90 )
Betis 2 - 1 Levante
1-0 Abde Ezzalzouli ('5 )
1-1 Carlos Espi ('45 )
2-1 Pablo Fornals ('68 )
Celta 1 - 0 Sevilla
1-0 Ilaix Moriba ('51 )
Mallorca 3 - 0 Oviedo
1-0 Pablo Torre ('42 )
2-0 Manu Morlanes ('83 )
3-0 Vedat Muriqi ('88 )
Getafe 1 - 0 Osasuna
1-0 Luis Milla ('59 )
Espanyol 1 - 1 Real Sociedad
0-1 Orri Steinn Óskarsson ('28 )
1-1 Roberto Fernandez ('65 )
Alaves 1 - 2 Rayo Vallecano
1-0 Toni Martinez ('13 )
1-1 Sergio Camello ('73 )
1-2 Randy Nteka ('90 )
Real Madrid 4 - 2 Athletic Bilbao
1-0 Gonzalo Garcia ('12 )
2-0 Jude Bellingham ('41 )
2-1 Gorka Guruzeta ('45 )
3-1 Kylian Mbappe ('51 )
4-1 Brahim Diaz ('90 )
4-2 Urko Izeta ('90 )
