Útlit er fyrir að Arne Slot verði áfram stjóri Liverpool á næstu leiktíð en hann hefur verið undir mikilli pressu eftir slæmt gengi liðsins á þessari leiktíð.
The Telegraph greinir frá því að Liverpool sé nálægt því að ráða nýjan mann í þjálfarateymið sem Slot þekkir vel.
Sá heitir Etienne Reijnen en hann mun sjá um föst leikatriði hjá félaginu. Þeir unnu saman hjá Feyenoord en Reijnen yfirgaf hollenska félagið á dögunum. Þá léku þeir saman hjá PEC Zwolle á sínum tíma.
Slot vildi fá hann með sér til Liverpool þegar hann var ráðinn eftirmaður Jurgen Klopp árið 2024 en Reijnen fékk ekki atvinnuleyfi.

