Þór tapaði gegn Keflavík á útivelli í nýliðaslagnum í Bestu deildinni í gær.
Hinn 17 ára gamli Einar Freyr Halldórsson fékk tækifæri til að jafna metin í blálokin en hann klikkaði á vítaspyrnu. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, segir að Einar muni fá traustið aftur.
Hinn 17 ára gamli Einar Freyr Halldórsson fékk tækifæri til að jafna metin í blálokin en hann klikkaði á vítaspyrnu. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, segir að Einar muni fá traustið aftur.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 Þór
„Hann er leikmaður sem þrífst á svona augnablikum. Það var enginn annar sem kom til greina að taka þetta víti," sagði Siggi.
„Hann hristir þetta af sér, hann er eðlilega svekktur að hafa klúðrað vítinu. Hann er sigurvegari og allir sigurvegarar eru svekktir að klúrða svona tækifæri. Hann verður mættur aftur á punktinn um leið og við fáum næsta víti."


