Kantmaðurinn Harry Wilson er eftirsóttur af úrvalsdeildarfélögum og verður samningslaus í sumar.
Wilson er 29 ára gamall og kom með beinum hætti að 18 mörkum í 41 leik á nýliðnu tímabili. Hann skoraði 10 mörk í úrvalsdeildinni og gaf 6 stoðsendingar með Fulham sem endaði um miðja deild.
Everton og Aston Villa eru meðal félagsliða sem hafa verið orðuð við Wilson en fleiri félög hafa verið nefnd til sögunnar jafnt innan sem utan Englands.
Everton er í leit að mörgum nýjum leikmönnum í sumar. Liðinu vantar hægri bakvörð, varnartengilið, kantmenn og framherja auk varamarkmanns.
Everton endaði um miðja deild á tímabilinu og var í baráttu um Evrópusæti þar til á lokametrunum.


