David Moyes, stjóri Everton, vonast til að geta hjálpað sínum fyrrum félögum í West Ham að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.
Lokaumferðin í úrvalsdeildinni fer fram á morgun. Everton heimsækir Tottenham og West Ham fær Leeds í heimsókn. Ef Tottenham tapar og West Ham vinnur mun West Ham bjarga sér á kostnað Tottenham.
Lokaumferðin í úrvalsdeildinni fer fram á morgun. Everton heimsækir Tottenham og West Ham fær Leeds í heimsókn. Ef Tottenham tapar og West Ham vinnur mun West Ham bjarga sér á kostnað Tottenham.
„Ég myndi gjarnan vilja halda West Ham í deildinni ef ég get. Það er hins vegar mikilvægara að koma Everton í efri hlutann og við reynum að fá nokkrar milljónir og þess vegna er mikilvægt hvar við endum í deildinni," sagði Moyes.
„Þegar maður er í þessari stöðu spáir maður ekki venjulega í því hvar maður er í deildinni fyrr en eftir fimm eða sex ár þegar maður lítur til baka."
Everton er í 12. sæti þremur stigum á eftir Chelsea og Brentford sem eru í 8. og 9. sæti. Chelsea og Brentford eru með betri markatölu.


