Aurelio De Laurentiis eigandi Napoli tók fréttamannafund með Antonio Conte eftir lokaumferð ítalska deildartímabilsins sem lauk í gær.
Napoli endar í öðru sæti og er Antonio Conte að yfirgefa félagið þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi. Hann hefur verið sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá ítalska landsliðinu.
Conte leiddi Napoli til Ítalíumeistaratitils á sínu fyrsta tímabil við stjórnvölinn í fyrra en í ár endaði liðið ellefu stigum frá toppsætinu.
„Við hefðum unnið deildina þægilega ef við hefðum ekki lent í öllum þessum meiðslum. Ég er að segja ykkur það," sagði De Laurentiis galvaskur á fréttamannafundinum en Conte gat ekki verið sammála honum og svaraði.
„Nei, nei alls ekki. Ég er ekki sammála þessu. Inter á allt hrós skilið, þeir eru með frábært lið sem komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra og styrkti svo hópinn enn frekar síðasta sumar. Þeir verðskulda þennan Ítalíumeistaratitil," sagði Conte en þá tók De Laurentiis aftur til máls.
„Þeir stóðu sig samt betur í Evrópu í fyrra heldur en í ár," sagði eigandi og forseti Napoli. Inter fór alla leið í úrslit í fyrra en tapaði afar óvænt gegn Bodö/Glimt í útsláttarkeppninni í ár. Conte var þó fljótur að svara.
„Þeir komust lengra en við. Þeir komust einu skrefi lengra.
„Ég get ekki tekið þátt í svona málflutningi. Það er mikilvægt að kunna að virða það þegar keppinautar manns ná árangri og sýna þeim virðingu útaf því ef við viljum fá virðingu þá þurfum við líka að sýna virðingu.
„Inter verðskuldaði þennan titil, með eða án meiðsla. Hver veit hvað hefði gerst ef við hefðum ekki lent í þessum meiðslum? Kannski hefðum við ekki einu sinni náð Meistaradeildarsæti. Meiðslin gerðu okkur samheldnari og gerðu okkur kleift að uppgötva nýja leikmenn."
23.05.2026 21:40
Antonio Conte fer frá Napoli eftir lokaumferðina
???? ??? ?????? & ?????? ?? ??????? ?????? ????????????
— ???? (@bt3) May 24, 2026
?? ???????? ???? ?????? ??? ???? ????? ??? ????? ????? ???? ???????? ???? ???? ?????? ??? ???????.
????? ??? ???? ??? ???? ????? ???? ?? ???? ?? ????? ???????.
• ????? ??? ?????? ?????? ?????? ??????. pic.twitter.com/1oQLD7rPHu


