Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   lau 23. maí 2026 18:14
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Viðar Örn skoraði - Viktor Andri með þrennu
Kári réði ekki við Kormák/Hvöt
Hvíti Riddarinn mætti Þrótti Vogum.
Hvíti Riddarinn mætti Þrótti Vogum.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fjölnir
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fjórðu umferð 2. deildar karla lauk með fimm leikjum sem fóru fram á sama tíma í dag. Þar var Viðar Örn Kjartansson mættur aftur í byrjunarliðið hjá Selfossi eftir agabann og skoraði úr vítaspyrnu.

Selfoss heimsótti Dalvík/Reyni og lenti undir í fyrri hálfleik en snéri stöðunni sér í hag, svo staðan var 1-2 fyrir Selfoss í leikhlé.

Áki Sölvason jafnaði metin fyrir heimamenn með marki úr vítaspyrnu í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 2-2. Selfoss er með fimm stig eftir fjórar umferðir, einu stigi meira en Dalvíkingar.

Viktor Andri Hafþórsson var þá aðalmaðurinn í Grafarvogi þegar Fjölnir rúllaði yfir Víking frá Ólafsvík. Viktor Andri skoraði tvö í fyrri hálfleik og var staðan 2-1 í leikhlé. Hann fullkomnaði þrennuna í upphafi síðari hálfleiks og innsigluðu liðsfélagarnir sigurinn svo lokatölur urðu 5-1.

Fjölnir deilir toppsæti deildarinnar með Haukum, bæði lið eiga 9 stig.

KFA rúllaði þá yfir Magna og er með 6 stig. Jawed Boumedanne og Marc Espi settu sitthvora tvennuna í fyrri hálfleik, lokatölur 4-0. Magni situr eftir með 3 stig.

Hvíti riddarinn lagði Þrótt Vogum að velli og eru bæði lið með 6 stig, á meðan Kormákur/Hvöt vann frábæran endurkomusigur á Kára.

Skagamenn náðu forystunni í fyrri hálfleik en Trausti Þór Þorgilsson jafnaði metin fyrir leikhlé. Moussa Brou kom Kormáki/Hvöt yfir í upphafi síðari hálfleiks og hélst staðan 2-1 þar til í uppbótartíma, þegar gestirnir frá Akranesi tóku að sækja stífar.

Tómas Týr Tómasson fékk tvö gul spjöld á lokakaflanum svo leikmenn Kára enduðu leikinn manni færri og fengu tvö mörk í bakið í uppbótartíma. Lokatölur urðu því 4-1 sem er skellur fyrir Kára þar sem liðið gat endurheimt toppsæti deildarinnar með sigri.

Kári er áfram með 7 stig og fer Kormákur/Hvöt upp í 6 stig.

Dalvík/Reynir 2 - 2 Selfoss
1-0 Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa ('16 )
1-1 Viðar Örn Kjartansson ('34, víti)
1-2 Aron Lucas Vokes ('43 )
2-2 Áki Sölvason ('79, víti)

Fjölnir 5 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Viktor Andri Hafþórsson ('19, víti)
2-0 Viktor Andri Hafþórsson ('41 )
2-1 Naim Aaras EL Hmaidi ('44 )
3-1 Viktor Andri Hafþórsson ('51 )
4-1 Árni Steinn Sigursteinsson ('75 )
5-1 Mikael Breki Jörgensson ('90 )

KFA 4 - 0 Magni
1-0 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('10 )
2-0 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('32 )
3-0 Marc Sirvent Espi ('38 )
4-0 Marc Sirvent Espi ('41 )

Hvíti riddarinn 2 - 0 Þróttur V.
1-0 Birkir Örn Baldvinsson ('67 )
2-0 Rikharður Smári Gröndal ('71 )

Kormákur/Hvöt 4 - 1 Kári
0-1 Sigurjón Logi Bergþórsson ('26 )
1-1 Trausti Þór Þorgilsson ('42 )
2-1 Moussa Ismael Sidibe Brou ('46 )
3-1 Bilal Kamal ('92 )
4-1 Manuel Ferriol Martínez ('95)
Rautt spjald: Tómas Týr Tómasson, Kári ('85)
Slapp
banner
banner
banner