Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   lau 23. maí 2026 10:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma?
Powerade
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Robert Lewandowski, Harry Kane, Ederson, John Stones, Andoni Iraola og fleiri koma við sögu.

Það er í forgangi hjá Barcelona í sumar að fá arftaka Robert Lewandowski, 37, en Harry Kane, 32, Julian Alvarez, 26 og Joao Pedro 24, eru efstir á óskalistanum. (Mundo Deportivo)

Man Utd hefur samþykkt að kaupa brasilíska miðjumanninn Ederson, 26, frá Atalanta fyrir 46 milljónir punda. (Sport Italia)

Ederson virtist vera á leiðinni til Atletico Madrid en spænska félagið vill frekar fá annan Brasilíumann að nafni Joao Gomes, 25, frá Wolves sem er áfram undir smásjá Man Utd. (Sky Sports)

Liverpool er að vinna í því að fá Samuel Martinez. Félagið vann Barcelona og Dortmund i kapphlaupinu um þennan 17 ára gamla kólumbíska sóknarmann. (Liverpool Echo)

Newcastle hefur blandað sér í baráttuni við Aston Villa um Victor Munoz, 22, vængmann Osasuna en félagið lýtur á hann sem eftirmann Anthony Gordon, 25, sem er á leið til Bayern. (Mirror)

Everton fær samkeppni frá Bayern um enska varnarmanninn John Stones, 31, sem fæst á frjálsri sölu þegar samningur hans við Man City rennur út í sumar. (Teamtalk)

Leverkusen er tilbúið að bjóða Andoni Iraola, stjóra Bournemouth, annan valkost en Crystal Palace ef Spánverjinn ákveður að framtíð hans lyggi annars staðar en í úrvalsdeildinni þegar hann yfirgefur Bournemouth í sumar. (Telegraph)

Roma hefur áhuga á Mason Greenwood, 24, sóknarmanni Marseille, og Crysencio Summerville, 24, sóknarmanni West Ham. (Calciomercato)

Bournemouth er að undirbúa tilboð í miðvörðinn Ousmane Dembelee, 22, leikmann Sporting, sem arftaka Marcos Senesi, 29, sem yfirgefur félagið þegar samningur hans rennur út. (Football Insider)

Newcastle, Aston Villa, Leeds, Brighton og Crystal Palace eru öll meðvituð um að Jonathan David, 26, framherji Juventus, sé tiltækur. (Teamtalk)
Slapp
banner
banner
banner