Gætu verið án sjö gegn meisturunum
Stjarnan tapaði í gær sínum fimmta leik í síðustu sex deildarleikjum þegar Fram kom í heimsókn í Garðabæinn.
Gengi liðsins hefur ekki verið gott, liðið er einungis með sjö stig eftir átta umferðir, sem er langt undir væntingum.
Gengi liðsins hefur ekki verið gott, liðið er einungis með sjö stig eftir átta umferðir, sem er langt undir væntingum.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn í gær og var spurður út í leikmenn sem eru fjarverandi. Emil Atlason og Örvar Eggertsson voru ekki með og var fyrst spurt út í þá.
„Það eru meiðsli, Emil er aðeins tæpur aftan í læri og Örvar tognaði á kvið, það ætti að vera stutt í þá báða. Mér finnst ekki líklegt að þeir verði með gegn Víkingi, en við skoðum hvort það verði hægt."
En Benedikt Warén?
„Benó og Alex Þór (Hauksson) verða aðeins lengur frá, Heiðar (Ægisson) gæti orðið klár í vikunni og svo verður Ibra (Ibrahim Turay, ristarbrot) náttúrulega lengur frá," segir Jökull.
Það voru ekki margir leikmenn á meistaraflokksaldri á bekknum hjá Stjörnunni í gær. Bjarki Hauksson, sem fékk síðar rautt í leiknum, og Þorri Mar Þórisson komu inn á en varnarmaðurinn Gustav Kjeldsen, sem er að snúa til baka eftir meiðsli, kom ekki við sögu og Darri Bergmann Gylfason er varamarkvörður. Tveir ungir og efnilegir leikmenn komu við sögu, þeir Benjamín Björnsson og Bjarki Hrafn Garðarsson.
Framundan hjá Stjörnunni er heimaleikur gegn Víkingi á þriðjudag og útileikur gegn Þór um næstu helgi. Svo tekur við landsleikjafrí. Ef enginn snýr til baka úr meiðslum á næstu viku verður Stjarnan því án sjö leikmanna gegn Víkingi þar sem Bjarki Hauksson tekur út leikbann.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 8 | 7 | 1 | 0 | 26 - 4 | +22 | 22 |
| 2. KR | 7 | 6 | 1 | 0 | 27 - 13 | +14 | 19 |
| 3. Fram | 8 | 5 | 2 | 1 | 21 - 13 | +8 | 17 |
| 4. Valur | 8 | 5 | 0 | 3 | 17 - 14 | +3 | 15 |
| 5. Breiðablik | 7 | 3 | 3 | 1 | 13 - 8 | +5 | 12 |
| 6. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 7. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 8. ÍA | 8 | 2 | 3 | 3 | 11 - 16 | -5 | 9 |
| 9. Stjarnan | 8 | 2 | 1 | 5 | 14 - 18 | -4 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 8 | 0 | 2 | 6 | 12 - 25 | -13 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |



