Gæti snúið aftur til Fenerbahce
Portúgalski þjálfarinn Jorge Jesus mun yfirgefa Al-Nassr eftir að hafa stýrt liðinu til langþráðs deildarmeistaratitils í Sádi-Arabíu.
Jesus er 71 árs gamall og býr yfir gríðarlegri reynslu sem þjálfari. Hann hefur komið víða við og náð miklum árangri við stjórnvölinn hjá Benfica í heimalandinu, auk þess að hafa þjálfað erkifjendurna í Sporting. Á ferlinum hefur hann meðal annars þjálfað stórveldin Flamengo í Brasilíu og Fenerbahce í Tyrklandi auk Al-Nassr og Al-Hilal.
„Ég samþykkti þessa áskorun bara til að hjálpa Cristiano. Ég sagði við hann að ég ætlaði að hjálpa honum að verða deildarmeistari í Sádi-Arabíu. Ég sagði við hann að við myndum vinna deildina og svo færi ég, sem er nákvæmlega það sem gerðist," sagði Jesus eftir lokaumferð tímabilsins þar sem Ronaldo skoraði tvennu til að innsigla titilinn. „Ég gerði það sem ég ætlaði að gera og núna er mínu starfi hér lokið. Þetta var síðasti leikurinn minn við stjórnvölinn hjá Al-Nassr.
21.05.2026 20:32
Tvenna frá Ronaldo innsiglaði langþráðan titil
„Þegar ég var ráðinn hingað vissi ég að þetta yrði erfiðasta áskorun þjálfaraferilsins. Til að vinna þessa deild þurftum við að vera miklu betri heldur en andstæðingarnir okkar, ég hefði ekki samþykkt þetta starf ef ekki fyrir Cristiano. Félagið bauð mér tveggja ára samning en ég vildi bara semja um eitt ár eins og ég hef gert í gegnum tíðina."
Þetta var fyrsti sigur Al-Nassr á deildarmeistaratitlinum síðan 2019, þegar leikmannahópurinn innihélt leikmenn á borð við marokkóska kantmanninn Nordin Amrabat, Ahmed Musa fyrrum kantmann Leicester sem skoraði gegn Íslandi á HM 2018, Brad Jones fyrrum varamarkvörð Liverpool, fyrrum brasilíska landsliðsmanninn Giuliano og marokkósku markavélina Abderrazak Hamdallah sem er enn að í dag.
„Það er mikil pressa í þessari deild og þetta er heilsuspillandi til langs tíma. Þetta var stórkostlegt ár en ég er mjög þreyttur og mun njóta árangursins á öðrum stað."
Pep Guardiola hefur verið orðaður við þjálfarastarfið hjá Al-Nassr og var Jesus spurður hvort hann yrði stoltur ef Pep tæki við af honum.
„Nei, af hverju? Hann ætti að vera stoltur að taka við af mér."
Jesus var að lokum spurður hvert leið hans liggur næst og var Fenerbahce nefnd til sögunnar af fréttamanni.
„Ég hef áður sagt að tyrkneska deildin er sú eina sem ég hef ekki unnið. Kannski á enn eftir að skrifa síðustu blaðsíðurnar í sögu minni og Fenerbahce. Það er möguleiki."
22.05.2026 12:15
Myndir: Ronaldo lyfti bikarnum sem meistari í Sádi-Arabíu





