Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 11:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sandra María hættir við að bóka flug og framlengir í Köln
Kvenaboltinn
Hefur skorað níu mörk með Köln í deildinni á tímabilinu.
Hefur skorað níu mörk með Köln í deildinni á tímabilinu.
Mynd: Köln
Á að baki 59 landsleiki og sjö mörk.
Á að baki 59 landsleiki og sjö mörk.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Sandra María Jessen hefur framlengt samning sinn við þýska félagið Köln. Hún er nú samningsbundin til 2028. Hún var keypt til Kölnar síðasta sumar eftir að hafa spilað með Þór/KA síðustu tímabil.

Sandra, sem hefur skorað níu mörk í þýsku deildinni, var orðuð við ensku deildina í síðasta mánuði og Fótbolti.net hefur heyrt slúðrað um áhuga frá bæði Liverpool og West Ham.

Í tilkynningu Kölnar hættir íslenska landsliðskonan við að bóka flug fyrir sig, unnusta sinn og dóttur til London og segist ekki vilja fara í burtu.

„Ég er hér með svalasta liðinu, besta starfsliðinu og spila fyrir frábæra stuðningsmenn. FC Köln er eins og stór fjölskylda og ég fékk ótrúlegan stuðning frá fyrsta degi. Það gefur mér mjög góða tilfinningu og tækifæri til að skila mínu og gefa til baka. Ég hef allt sem ég þarf hér. Ég gæti ekki verið ánægðari með ákvörðunina um að vera áfram hjá FC. Ég er orðin ástfangin af Köln," segir Sandra við undirskrift.

Hún er þrítugur framherji sem hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari með Þór/KA og tvisvar sinnum orðið markadrottning efstu deildar á Íslandi. Hún er tveimur mörkum frá markahæstu konum í þýsku deildinni þegar níu umferðir eru eftir.

Köln er annað þýska félagið sem Sandra hefur spilað en hún lék áður með Leverkusen.


Athugasemdir
banner