María Catharina Ólafsdottir Gros lagði upp mark Djurgarden í 1-0 sigri á Pitea í sænsku deildinni í dag. Djurgarden er í 8. sæti með sjö stig eftir sjö umferðir.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir spilaði allan leikinn í 3-2 sigri Bröndby gegn Kolding í dönsku deildinni. Bröndby er á toppnum með tveggja stiga forystu á Koge þegar tvær umferðir eru eftir en Koge á leik til góða.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir spilaði allan leikinn í 3-0 tapi PEC Zwolle gegn Den Haag í lokaumferðinni í hollensku deildinni. PEC Zwolle endar í 6. sæti með 34 stig.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var í byrjunarliði Anderlecht í 1-1 jafntefli gegn Club Brugge í lokaumferð belgísku deildarinnar. Anderlecht endar í 2. sæti og er á leið í Evrópubikarinn á næstu leiktíð.
Andrea Rut Bjarnadóttir er einnig leikmaður Anderlecht en hún er á meiðslalistanum. Liðið mætir Zulte Waregem í úrslitum bikarsins 30. maí.



