Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 15:30
Kári Snorrason
Óvenju stutt sumarfrí hjá Sverri sem verður ekki með gegn Argentínu
Eimskip
Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sverrir Ingi Ingason er í landsliðshópnum sem mætir Japan í lok mánaðar en verður ekki með í leiknum gegn Argentínu í Alabama 10. júní.

Sverrir, sem hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár, leikur með Panathinaikos. Hann klárar tímabilið með gríska liðinu í lok mánaðar en liðið kemur aftur saman um mitt sumar og spilar í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í fjarveru Sverris gegn Argentínu á blaðamannafundi í hádeginu.

„Eftir samtal við hann og félagið hans var þetta niðurstaðan. Sumarfríið hans verður óvenju stutt núna eftir árangur Panathinaikos, þar sem liðið fer í Sambandsdeildina.

Þarna var hagur leikmannsins hafður að leiðarljósi. Við töldum betra að hann kæmi með okkur til Japans og sleppti leiknum við Argentínu til þess að gera hann sem best kláran fyrir haustið,“
sagði Arnar á blaðamannafundi landsliðsins fyrr í dag.
Slapp
banner
banner
banner