Heimild: Novsport.com
Garðar í hart við CSKA Sofia vegna vangreiddra launa
Garðar B. Gunnlaugsson, leikmaður CSKA Sofia í Búlgaríu, hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann gekk til liðs við félagið á síðasta ári. Hann fékk lítið sem ekkert að spreyta sig á síðasta keppnistímabili og var síðan tjáð í vor að hann ætti enga framtíð hjá félaginu.
Nú stendur hann í erfiðri launadeilu við félagið þar sem hann hefur ekki fengið útborgað í fjóra mánuði og hyggst fara með málið til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, til að fá sínu framgengt.
,,Ég vil komast burt frá félaginu sem fyrst því þjálfarinn segist ekki hafa nein not fyrir mig,“ sagði Garðar í samtali við Novsport.com.
,,Ég elska Búlgaríu, sérstaklega á sumrin þegar heitt er í veðri. Ég fæ hins vegar aldrei tækifæri þó svo að stuðningsmennirnir styðji mjög vel við bakið á mér.”
Framtíð Garðars er mjög óljós en hann vonast til þess að þau mál skýrist áður en félagaskiptaglugginn rennur út.
,,Ég á fjögurra mánaða laun inni hjá félaginu og mun fljótlega hafa samband við FIFA ef ég fæ ekki það sem mér ber samkvæmt samningnum.”
,,Það hefur ekkert tilboð borist í mig enn sem komið er en ég veit að það er áhugi fyrir hendi.”
Garðar var á mála hjá sænska liðinu IFK Norrköping áður en hann gekk til liðs við CSKA Sofia og þótti standa sig með prýði þar og skoraði grimmt.
Hann er samningsbundinn CSKA Sofia til næstu tveggja ára.

