Úlfarnir náðu frábæru stigi gegn Englandsmeisturum Manchester City í dag.
Varnarmaðurinn Willy Boly var besti maður vallarins þar sem hann hélt Sergio Agüero í skefjum og skoraði eina mark Wolves í leiknum.
Rui Patricio í marki Úlfanna var næstbestur á vellinum ásamt David Silva sem stjórnaði miðjuspilinu í dag.
Agüero og Vincent Kompany fá lægstu einkunnir leikmanna Man City. Agüero hefði getað skorað í þessum leik en skaut bæði í stöng og slá á meðan Kompany var næstum búinn að gefa Úlfunum mark í fyrri hálfleik, aðstoðardómarinn bjargaði honum.
Wolves: Patrício (8), Coady (6), Bennett (7), Boly (9), Doherty (7), Neves (6), Moutinho (6), Jonny (7), Jota (6), Jiménez (6), Costa (6)
Varamenn: Traore (6), Vinagre (6)
Man City: Ederson (7), Walker (7), Kompany (6), Laporte (7), Mendy (7), Fernandinho (7), Gündoğan (7), Silva (8), Sterling (7), Bernardo (7), Agüero (6)
Varamenn: Sane (6), Jesus (6), Mahrez (5)
Athugasemdir