Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 26. september 2018 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Redknapp: Ein flottasta aukaspyrna sem ég hef séð
Jamie Redknapp
Jamie Redknapp
Mynd: Getty Images
Jamie Redknapp, sparkspekingur á Sky Sports, segir aukaspyrnumark Harry Wilson gegn Manchester United, eitt flottasta mark sem hann hefur séð.

Wilson er á láni hjá Derby frá Liverpool en hann hefur blómstrað undir stjórn Frank Lampard.

Hann skoraði fyrra mark Derby gegn Manchester United í enska deildabikarnum í gær en markið var afar laglegt. Wilson skaut þá af rúmlega 30 metra færi og smellhitti knöttinn.

Redknapp lofsamaði Wilson eftir leikinn.

„Þessi aukaspyrna er ein flottasta aukaspyrna sem ég hef á ævinni séð. Þegar maður sér frábær mörk eins og aukaspyrnan hans Roberto Carlos. Þegar ég horfi á þetta mark, það er stórkostlegt," sagði Redknapp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner