Segir lögregluna leggja mikið púður í mál Ronaldo
Lögreglan í Las Vegas hefur neitað að ræða um rannsókn sína á nauðgunarmáli gegn Cristiano Ronaldo, sem er sakaður um að hafa nauðgað Kathryn Mayorga í Las Vegas árið 2009.
Mayorga lét ákæruna falla niður eftir að samið við lögfræðiteymi Ronaldo. Nýleg umfjöllun Der Spiegel um málið vakti mikla athygli sem endaði á því að lögreglan í Las Vegas tilkynnti að málið hafði verið opnað aftur.
Búist er við að Mayorga sjálf verði tekin í ítarlegt geðmat af sérfræðingum í Las Vegas og þykir ljóst að lögreglan ætlar að leggja mikið púður í þetta mál sem hefur þegar vakið athygli um allan heim. Þessar upplýsingar veitir reynslumikill rannsóknarlögreglumaður frá Bandaríkjunum, samkvæmt frétt Daily Mail.
Ronaldo neitar ásökununum en ljóst er að þau þekkjast þar sem til eru ljósmyndir af þeim saman.
Mayorga er með gráðu úr fjölmiðlafræði en hefur aðallega sinnt störfum sem fyrirsæta og grunnskólakennari. Ronaldo borgaði henni 375 þúsund dollara fyrir að láta ákæruna falla niður og skrifa undir trúnaðarsamning. Það samsvarar um 43 milljónum íslenskra króna.
Hin ýmsu fyrirtæki sem starfa með Ronaldo hafa lýst yfir áhyggjum vegna málsins, þar á meðal eru Nike, Barnaheill og EA Sports. Þá hafa hlutabréf Juventus fallið um rúm 10% á síðustu dögum.
Sjá einnig:
Myndir frá kvöldinu afdrifaríka hjá Ronaldo
Nike hefur áhyggjur af ásökunum á hendur Ronaldo
Ronaldo vísar ásökunum um nauðgun á bug
Ronaldo: Nauðgun alvarlegur glæpur sem stríðir gegn öllu sem ég stend fyrir
Enginn Ronaldo í portúgalska landsliðshópnum
Juventus stendur við bakið á Ronaldo


